föstudagur, janúar 4

Árið

Gleðilegt ár elskurnar.




Ég ætlaði að blogga 1. janúar 2008 en gleymdi því og er með krónískan bömmer yfir því.
4. janúar er samt smartur.
Kidda rokk á afmæli í dag til dæmis.
Anna bekkjasystir eignaðist líka dóttur í nótt.
Tengdapabbi á afmæli á morgun.
Og við fáum Holtsgötuna afhenta á morgun!

Jesúsminn.
Við erum byrjuð að pakka og jesúsum okkur í gríð og erg.
Af því að
a) við trúum því varla að við séum að flytja héðan.
b) við eigum fáránlega mikið af drasli.
c) jesúsminn hvað það er leiðinlegt að flytja.

En ég hlakka til að koma okkur fyrir á Holtsgötunni.

Og blíng og blang, Hjördís er á leiðinni og við ætlum í Íkea, júbbííí!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég á nú líka afmæli á morgun,en það þykir kannski ekkert merkilegt,(snökt).

9:03 e.h.  
Blogger Sigga said...

Jiiisús ég skil ekkert í hvernig mér datt í hug að gleyma því!
Auðvitað er það stórmerkilegt, bjallaðu ef þið verðið í bænum á þessum dýrðarinnar drottins degi.

9:35 e.h.  
Blogger Alda Rose said...

Glelegt nytt ar elsku femmelli. Rosa saet a mynd. Kissi x milljon.

Al

5:56 f.h.  
Blogger Ragga Rokkar said...

Gleðilegt ár litla familía ;)

9:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home