laugardagur, janúar 26

Áfram

Já hér er endalaust nýtt ár, a.m.k. svona myndrænt séð.
Myndavélin er full af nýjum myndum en þær komast ekki út á meðal almennings því við finnum hvergi snúrna sem sér um þær tilfæringar.
Hamingjuríkt nýtt ár, gleðilegt og skemmtilegt.
Erum búin að koma okkur svona líka stórfínt fyrir.
Hér væri lag að sýna ykkur before og after myndir af íbúðinni en það er ekki í boði.
Sökum téðrar snúru.
Ég stefni á að finna hana eða komast í aðra því það er mjög mikilvægt að allir sjái grænu og rauðu veggina sem nú eru svona líka antíkhvítir, eða gluggakarmana sem ég hélt að væru ónýtir en eru bara trés nice, hvað þá loftlistana svonalíka glansandi hvíta en ekki nikótíngula.
Það er svo geðbilað fínt hérna að stundum verð ég bara feimin.
En ég hef sumsé engin sönnunargögn enn.
Og þykir það mjög leiðinlegt.

Ætli maður komist út í göngutúr í dag með vagninn?

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með íbúðina og gleðilegt ár.

Ég laumaðist til að skoða síðuna hans Konráðs Ara, svaka sætur og flottur strákur. Mér fannst líka skemmtilegt að hann á nákvæmlega eins spariföt og litli guttinn minn, jóladressið og efri partur áramótadressins. Smart börn sem við eigum.

3:32 e.h.  
Blogger Ingimar said...

ég myndi lána ykkur mína en þið verðið þá að sækja hana sjálf ;)

Til hamingju með nýju íbúðina

6:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ertu búin að gá í skúffuna

8:44 e.h.  
Blogger Sigga said...

Alveg velkomið að skoða Ljúfa, og já við búum sko til smört börn.

Takk Ingimar, sæki hana kannski þegar ég er orðin ríkur þroskaþjálfi.

Anna, sjittíbaba sko, ég er búin að leita útum allt!
Þú verður bara að koma og leita.

2:02 f.h.  
Blogger Alda Rose said...

ég er að bíða kona! Gleðilegt nýtt ár líka. KOmst pakkinn til skila?

4:29 f.h.  
Blogger Sigga said...

Ó já Alda, pakkinn kom og er vel metinn hér, ugly doll er mjög sætur :)
takk kærlega *kyss*

7:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home