sunnudagur, desember 17

Adjusted

Vaknaði í morgun heyrandi Dolly syngja Winter Wonderland í hausnum á mér.
Er greinilega batnað af aðlögunarröskuninni.
Aðlöguð.
En að kvefast.
Nebbinn litli stíbblaður og hálsinn með fimm dverga í hnífabardaga oní sér.
Keypti í gær ýmist skrýt eins og hjartarsalt, negul og sýróp, afskaplega fönkí varningur sem ég ætla að efnabreyta í gúmmelaði um leið og tækifæri býðst.
Rölti aðeins Laugaveginn í gær með sys o má og keypti fjórar jólagjafir og fékk hugmynd að fimmtu.
Allt að gerast!

Búin að jólaskreyta tölvuna:

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég er búin að skila bölv... ritgerðunum og svei mér ef ég fæ ekki nóbelinn fyrir þetta. Eða kannski ekki. Mjög líklega ekki.
Pottþétt ekki.

ó ó ó ó ó
bara eitt pró(f) pró(f)pró(f)
og þá koma jó(l) jó(l) jó(l)

greindu nú hvaða röskun ég er með..

3:55 e.h.  
Blogger Sigga said...

Ó ó ó ó ó


sæk ó

7:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hó hó

11:13 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

gling gló?

11:35 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home