fimmtudagur, mars 2

Lín svín

Hohoho þetta er frábært pakk sem semur reglur fyrir Lín.
Ég fékk rukkun um daginn fyrir gamalt lán uppá 74 þúsund.
Áðan hringdi ég í Lín og spurði hvort ég ætti virkilega að borga þetta núna þegar ég er í námi og á námslánum frá Lín.
Jájá, sagði kallinn. Nema þú hafir verið með tekjur undir 1,7 millur í fyrra, þá sleppurðu.
Ég var með 1,9.
Ég fæ 280 þúsund krónur í framfærslu fyrir þessa önn og þarf að borga 74 þúsund af þeim krónum aftur til Lín.
Þá fæ ég að lifa á 206 þúsund krónum þessa önn.
Mikið óskaplega væri nú gaman að heyra frá þeim HVERNIG Í ANDSKOTANUM MAÐUR Á AÐ GERA ÞAÐ?!?!?!?!!!!!!!

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta eru fantar. Mig grunar einmitt að ég muni þurfa að nota lánin sem ég ætla að taka þegar ég fer í doktorsnámið til að borga upp lánin sem ég var á í 3 annir í frönskunni í gamla daga.

4:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

sleptu því bara, þetta verður ekki farið í lögfræðinga fyrr en í haust mundi ég giska, vextrnir verða kanski svona 2þ. kall. Gleymdu þessu bara esskan.

4:36 e.h.  
Blogger Sigga said...

Haha með minni heppni yrðu vextirnir 200 þúsund.
Nei ég get ekki lifað með skuld á bakinu, kem mér frekar í skuld annarstaðar og fæ mér svo bara vinnu.
Ég stóð bara í þeirri fáránlegu meiningu að maður færi á Lín af því að maður gæti ekki unnið með náminu.
Skil ekki neitt.

10:34 f.h.  
Blogger Iceland Today said...

Farðu með tjald, smokka, sleipiefni og pimp upp á Kárahnjúka. Kemur ógeðslega múruð til baka!

4:20 e.h.  
Blogger Sigga said...

Ég fer nú ekki að sóa neinum peningum í pimp skoh.
Gebba ógó hugmynd annars.
Skal íhuga það ef Halldór Ásgríms og Valgerður prufa fyrst.

5:08 e.h.  
Blogger Unknown said...

Ég er löngu búin að komast að þeirri niðurstöðu að helsta markmið LÍN sé að koma í veg fyrir að fólk stundi háskólanám og ljúki námi. Þetta er hluti af stærra samsæri Gunnars Birgissonar og félaga, sem ég ætla ekki að fara nánar út í hér. :)

12:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home