föstudagur, maí 19

Fögnuður

Sylvíudjókurinn náði hámarki í gær og var mega fyndinn.
Þetta átti að fara nákvæmlega svona, það er í stíl við karakterinn.
Sylvía Nótt er nefninlega alltaf að reyna að meika það og misheppnast það alltaf illilega, eins og í gær.
*Klappklappklapp*

Í gær missti ég járnklump á fótinn minn og hélt að hann væri brotinn.
Fór á slysó og beið þar í tvo klukkutíma eftir tveggja ára gömlum lækni sem potaði aðeins í fótinn og sagði hann ekki brotinn.
Fyrir þetta fékk ég að borga 3300 krónur íslenskar.
Húrra fyrir hinu frábæra og ókeypis heilbrigðiskerfi Íslands!
Húrra! Húrra! Húrraaaaaa!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home