sunnudagur, apríl 2

Dagur 7

Fór á tónleika í gær og reykti ekki neitt.
Var úti til að verða fjegur og massaði reykleysið.
Þorði samt ekki að detta í það og var því bara edrú.
Tónleikarnir sem slíkir voru upp og niður.
Þetta var á Stúdentakjallaranum og hljómsveitirnar Stilluppsteypa, Seabear, Retron og Skátar tróðu upp.
Stilluppsteypa átti góða spretti en spilaði of lengi, Seabear heyrðist varla í fyrir lélegum hljómgæðum en lofuðu góðu, Retron eru ógeðníngslega einhæfir og leiðinlegir og Skátar voru æðislegir þrátt fyrir skítasánd.
Nú er ég farin í fermingarveislur.
Éta.

2 Comments:

Blogger Oskar Petur said...

Ekki get ég nú alveg verið sammála þér með Retron, þetta er alveg fínasta hetjumetal.

Glæsilegt Skáta+Retron lagið sem kom á milli. Skátar sjaldan verið betri!

Sándið var reyndar afar vont - skipti ekki máli, það var of gaman.

11:19 f.h.  
Blogger Sigga said...

Skáta-Retron lagið var cover á DJ Musician, alveg brill hjá þeim, ójá.
Ef ég hefði verið full hefði ég kannski skemmt mér betur, hehe...

2:50 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home