fimmtudagur, maí 27

Hér er gott að dansa

Hárið á mér kostaði níuþúsund kellíngar.
Klipp og lit.
En ég lít svo á að þetta sé uppsafnaður sparnaður þar sem ég hef farið sirka einu sinni á ári á hárgreiðslustofu.
Hin skiptin hafa vinir og vandamenn séð um hárið á mér.
Og ég sjálf.
Ég er geðveikt góð í að klippa á mér toppinn til dæmis.
Einu sinni fór ég í klippingu á stofu hjá stelpu sem dáðist að því hvað toppurinn á mér var vel klipptur.
Gerði það sjálf, sagði ég.
Juuu, sagði hún, ég gæti ekki klippt svona beint.
Ég fór aldrei til hennar aftur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home