miðvikudagur, maí 26

Big Deal

Fór á Pixies í gær.
Undarlegt alveg hreint.
Absúrt að sjá ædolin 15 árum seinna, ég var lengi að tengja.
En þetta var ágætt alveg þrátt fyrir sándbögg og sambandsleysi í mér. Best fannst mér lögin tvö eftir eftir uppklappið.
Nei best fannst mér þegar Kim Deal reykti og spilaði á bassann, það var rokk.
Ég ætla að æfa mig núna í að reykja á meðan ég spila á gítarinn.
Svo fann ég mikla þörf fyrir að hlusta á og sjá Throwing Muses.
Ætli þær taki ríjúníjón á það næst?
Það væri massa rass.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home